Hífum við bræður allir sem einn
Meistararnir
Meistaramyndir ´09
01.05.2009 20:12:26 / tuni

Sterar og stunguskóflur....

 goðann og blessadann...

rakst herna a nokkra fina punkta...

You know you're a farmer when........
Your front carpet is muddier than your drive.
You have animals living in buildings more expensive than your house.
You can remember the fertiliser rate, seeding rate,and yields on your farm you had ten years ago, but cannot recall your wifes birthday.
Your fridge does not only contain food.
Your "best" suit only leaves the wardrobe for weddings and funerals.
Over 50% of your clothing comes from chemical or seed dealers.
Your dog rides in the truck more than your wife.
You take an instant dislike to anyone walking into your farmyard wearing a suit.
Weddings and other special events are planned around seeding,spraying and harvesting.
You get excited about that city break he's organised-- only to find there is a big agricultural show on near the hotel.
An afternoon off means getting up four hours earlier.
You talk to every cow you see , even if it's not your own.
Calves are allways born just after you you've got dressed up to go out.
Your daughters don't bring new boyfriends home for fear of your dad asking them if they can drive a tractor.
Your wifes hands are like sandpaper.
The words "soap and towel" don't conjure up images of a relaxing bath.
Herd books double as tablemats at meal times.
Your birthday is allways forgotten, but births and deaths of stock are allways remembered.
Friends buy a house with a two acre garden and you calculate how many bushels of corn it would grow.
You find nuts and bolts in the bottom of your handbag instead of loose change.



» 25 hafa sagt sína skoðun

09.04.2009 14:53:47 / tuni

Grænar hendur á ferd??

Eftir allmikla tiltekt hja fikno a landbunadarsvidum undirheimana her a klakanum undanfarid rakst eg a þessa mynd a farmphoto um daginn... þarf ekki eins mikid ad græja þarna uti eins og herna heima se madur med grænar hendur, bara rolta inni maís-akurinn ha næsta bonda, og muna eftir ad vera undan ad uppskera... hehe




get ekki annad en velt fyrir mer ahrifum þess a kýrnar ad "krydda" adeins stæðuna hja þeim...

kv. Ívar í Túni.....


» 25 hafa sagt sína skoðun

01.04.2009 19:09:42 / Einarinn

Gamlar dráttarvélar í hættu?

Nú er verið að selja gamla traktora út.... og er sp. hvort að fari einhvað af vélum sem meiga ekki missa sín hér á landi.... hafa menningarlega verðmæti...

 

Tekið af BBL.is

 

,,Það hefur ekki farið framhjá vegfarendum á austurleið að mikill fjöldi gamalla dráttarvéla stendur á planinu hjá Jötni Vélum á Selfossi. Þarna er ekki um búvélamarkað að ræða heldur söfnunarmiðstöð búvéla sem er samstarfsverkefni Bændasamtaka Íslands og Jötunn Véla. Bændur hafa komið með gamlar búvélar á síðustu vikum og fengið gott verð fyrir, allt upp í 1 milljón króna fyrir aflóga dráttarvélar. Að sögn forsvarsmanna Bændasamtakanna er um alþjóðlegt verkefni að ræða sem gengur út á að koma gömlum búvélum til þróunarlanda og jafnframt að treysta fæðuöryggi í heiminum. Það er FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, sem er í forsvari fyrir áætlunina sem ber heitið „AgroExchange 2009“ og verður varið 135 milljónum evra til hennar í ár í formi útflutningsstyrkja. Yfirvöld landbúnaðarmála í hverju landi fyrir sig fá fjármuni til ráðstöfunar sem síðan er veitt til þeirra sem leggja verkefninu til gamlar búvélar.

„Bændasamtökin hafa stofnað útflutningsmiðstöð vegna þessa verkefnis og áætlað er að hluti af þeim gjaldeyristekjum sem koma inn í landið fari í að niðurgreiða áburð fyrir bændur. Við vonum að ákvæði í nýju lagafrumvarpi um Bjargráðasjóð gefi okkur tækifæri á að nýta þessa fjármuni á þennan hátt. Nefnd á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna var hér á landi fyrir skömmu þar sem farið var yfir þær reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla og höfum við í samvinnu við Landbúnaðarsafn Íslands smíðað vinnureglur fyrir okkur,“ segir Eiríkur Blöndal framkvæmdastjóri BÍ.

Hugmyndin að AgroExchange 2009 kviknaði í undirbúningi fundar stærstu iðnríkjanna sem nú fer fram í London. Mun aðgerðin einkum hugsuð sem mikilvægt skref í að tryggja matvælaöryggi og viðskipti með búvörur á heimsvísu. Bæði hjálpar þetta bændum í þriðja heiminum sem eru lítt tæknivæddir og vestrænir bændur fá umbun fyrir að koma vélunum frá sér. Nokkur andstaða var við málið hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins en þar á bæ var talið að útflutningur gamalla búvéla samræmdist ekki þeirri stefnu sambandsins að minnka útblástur koltvísýrings. Aðgerðin bitni á lofthjúp jarðar vegna losunar gróðurhúsalofttegunda og brengli eðlilega verðmyndun á markaði með búvörur.

Að sögn landbúnaðarráðherra, Steingríms J. Sigfússonar, felast í þessu margháttuð tækifæri, einkum til gjaldeyrisöflunar. „Það er nú gaman að segja frá því að sjálfur á ég gamlan Ferguson 135 sem er fáum til gagns austur á Gunnarsstöðum. Hef ég gælt við þá hugmynd að leggja mitt af mörkum og taka þátt í útflutningsverkefninu þó ég sjái eftir vélinni sem slíkri. En nú verða allir að leggjast á árarnar,“ sagði Steingrímur."

http://www.bbl.is/Uploads/images_2009/buvelar_fao.jpg


Minni á ferð að Hesti næstu helgi og kannski kvöldheimsókn á einhvern vel valdan bæ eftir það....

Kv
Einar Magnússon


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2009 23:12:52 / Einarinn

Hvanneyraferð

Jæja ég og Ívar fórum ásamt sérlegum ráðgjafa á námskeið. En ráðgjafinn er Bjarni Arnar Hjaltason sem er búfræðingur með áherslu á Nallafræðum...

 

Sem sagt fórum við núna um helgina á forntraktoranámskeið... sem var einkarlega skemmtilegt og fræðandi.... og kvekti heldur betur í manni uppgerðarhuginn sem er búinn að vera í dvala......

http://www.ferguson-felagid.com/images/hopurinn.JPG


Kveð að sinni
Einar Magg.....


» 24 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 20:08:14 / tuni

Eitt og annað...

Veriði sæl og blessud, gott fólk.....

er þa ekki ad kominn tími á ad henda nokkrum velvoldum linum herna inn.....

tjah annars er farid þad ad fretta ad sá orðrómur hefur verid ad breiðast út medal bænda i heimasveit MF ad starfsemi felagsins hafi verið logð af þar sem móri hafi ekkert sest i vetur nema við upptokur þorrablótsannáls og flestir bændur hafa ekki verið trufladir med léttum veitingum vid gegningar ansi lengi. Sá orðrómur á ekki við nein rok ad stydjast og telja ma ad sú ládeiða sem verid hefur yfir "mennningarferdum" okkar se vegna þad sé bara svo brjalad ad gera hja medlimum felagsins......  en þad er aldrei ad vita nema hrundid verdi af stad heimsoknarherferd á vormanudum....

Hinsvegar hefur verið akveðið að bæta í hóp pistlahöfunda á þessari sídu þar sem við sem fyrir erum sláum engin skarphédinsmet í afkostum(en þetta yrdi þa eina svidid sem vid gerum þad ekki). Það mun vera Gunnar Miðholtsgreyfi, og hefur hann gert gardinn frægan sem pistlahofundur á vef Al Jazeera fréttastodvarinnar. Bundar er miklar vonir kappann, en heyrst hefur ad hann muni þyða pistla sína a 48 tungumal sem er hluti af alþjóðavæðingu síðunar...

Annars er manni farið ad kitla í puttana á klara oll handritin ad raunveruleikaþáttunum sem voru í bígerð, en einar lagdi alla framleidslu í uppnám eftir síðasta þatt....  her geti þið rifjað þad upp, því þad er aldrei ad vita nema ritandin muni hellast yfir mann á næstu dogum eða vikum....

1. þáttur- 2. þáttur- 3.þáttur

Annars er þad ad fretta eftir helgina ad við felagarnir kiktum á Sigga í Hjálmholti á laugardaginn og var þad feikna god skemmtun, og voru oll heimsins vandamál rædd yfir einum koldum...

 hér ma sjá kumpánana milli umræðna... en við þokkum sigga fyrir góðar móttokur...!

læt þad ekki vera meira að sinni... 

kv. Ívar í Túni




» 20 hafa sagt sína skoðun

15.02.2009 23:31:24 / Einarinn

Folaldasýningu lokið

Folaldasýning Hrossræktunarfélags Hraungerðishrepps var haldin í dag að við stöddu fjölmenni um 80 - 90 manns.. Alls tóku 24 folöld þátt. Sýning var haldin í Halakot og eiga Einar Öder og Svanhvít miklar þakkir fyrir að taka á mót okkur. Jón Vilmundar var dómar og á hann sömuleiðis þakkir skildar fyrir sín störf. Óðinn Örn var kynnir og stóð sig með prýði eins og vaninn er. Folöldin röðuðust svona.

1. Frami frá Brúnastöðum Eig/rækt og sýnandi var Ágúst Guðjónsson
2. Toppur frá Litlu-Reykjum Eig/rækt Sigríður Gísladóttir, sýnandi var Páll Þórarins sem sýndi takta..
3. Hylli frá Brúnastöðum Eig/rækt og sýnandi var Ágúst Ingi

Áhorfendur kusu síðan folald sem þeim fannst bera af og var það Toppur sem vann það...

Sýningin var tileinkuð minningu um Kristins Helgasonar bónda í Halakoti,,,,
 
Maggi á Leirárgörðum ef þú skoðar þessa síðu ennþá þá er kálfafóstra til sölu hjá Jón Elfari á Hrafnagili...

kv ... Einar Magg bíður spennur eftir að Geir bloggi....

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 17:13:51 / Einarinn

Fjárbúið

Fjárbúið mitt er langt í frá galdþrot þrátt fyrir mikla verðbólgu og háastýrivexti, Skuldir búsins eru engar og afkoman var betri en í fyrra þrátt fyrir að kjötgæði og fallþungi hafi fallið eins og krónan...

Árið            2007            2008


Gerð            11,75            10

fita                7,5                7,4

Fallþungi        17,7            15,4


Fjöldi                6                   9

Fj. Fæddra       13                10

Sett á                 1                  0


svo var fækkað hjá mér kindunum en ég á 5 núna en átti 7 áður, 2 voru gamlar og var slátrað....

   

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.01.2009 16:04:25 / Einarinn

kvóti

Kvóti hefur lækkað mjög mikið síðast liðna daga og mánuði,, hann lækkaði um tæpar 20 krónur bara í janúar og líklega verður hann orðinn ókeypis í lok árs...


Verð á greiðslumarki verðlagsárið 2008-2009

 

 

 

 

Dagsetning

Sala á

Uppsafnað frá 

Meðalverð síðustu

gildistöku

 greiðslumarki ltr.

 upphafi verðlagsárs, ltr.

 500.000 ltr. kr/ltr*

1. september 2008

783.381

783.381

304,22

1. október 2008

19.387

802.768

297,52

1. nóvember 2008

0

802.768

-

1. desember 2007

101.756

904.524

288,32

1. janúar 2009

173.496

1.078.020

238,24

1. febrúar 2009

174.435

1.252.455

221,14

1. mars 2009

 

 

 

1.apríl 2009

 

 

 

1. maí 2009

 

 

 

1. júní 2009

 

 

 

1. júlí 2009

 

 

 

* Að baki meðalverði er að lágmarki miðað við síðustu 500 þúsund lítra.

 



» 11 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 16:30:21 / tuni

Jólakveðja


» 27 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 11:33:45 / tuni

.....?

Vorverkin gerast ekki meira hressandi en þetta.....!!!!


nei akvad ad henda þessu inn svo sidan sofni ekki alveg.......  en sogurnar segja ad svona muni vorverkin vera í Bár nk vor, sel þad ekki dyrara en eg keypti þad.....!!

svo styttist óðum í bustadaferdina.....!!!  Það verður rosalegt......!!!

» 36 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 21:17:57 / tuni

Ferð Helgarinnar....

Jæja komnar inn myndir af  fjósheimsóknum okkar í Efri-Gegnishóla og Súluholt a laugardaginn, undir meistaramyndir  her til hliðar...... 

Einnig vil eg þakka Braga og Frú, og bræðrunum í Súluholti fyrir frabærar móttökur, ad var svo langt sidan við fórum i formlega ferð ad við vorum bara nanast bunir ad gleyma hversu gaman þetta er...

Annars ætladi Geir ad rekja ferðasöguna til hins ýtrasta a næstu dögum, og þad i veglegum bloggpistli.....

þar til seinna..... Ívar í Túni...... 

» 33 hafa sagt sína skoðun

08.11.2008 11:54:40 / Einarinn

Kálfar og fjósskoðuð

Mf er að fara á eftir í fjósskoðun til hans Braga í Efri-Gegnishólum. En vild ég koma inn eftir að Siffa á Tóftum sem birtist á sunudaginn um þrjá tvíkelfingar..

Hér er fréttin http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4398098/14 




» 2 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 16:15:53 / tuni

Frumsýning....

jæja,

þa er komið seinni hluta af norðurferdinni frægu, en vinnan vid þetta tok margfalt meiri tima en manni grunadi i upphafi og ma segja ad madur se sja alla brandarana 200x, enda liklega um 1 og halfur klukkutimi af efni sen nadist adklippa nidri uþb. 30min...  en þetta er nu skemmtilega mikid bull og veitleysa....  enda var þetta algjor snilldar ferd...!!

 


njotið vel,

Ívar í Túni- has left the building....

» 25 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 13:13:29 / Einarinn

Kúahagfræði

Brandari af Bssl.is

SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú.
Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÍSLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum.
Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.

JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, "Kúmann", sem nær miklum vinsældum um allan heim.

ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.

ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar.
Þú ákveður að fá þér að borða.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.

SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5.000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki

ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er býsna löguleg.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 23:14:16 / tuni

Jamm og jæja.......

jæja, fyrst þjoðarstoltið er nu endanlega farið i ruslid þar sem vid munum þyggja hjalp fra færeyingum, er þa ekki komin timi a ad fara bulla eitthvad herna inn.....


Reyndar má segja að MF medlimir hafi krufið efnahagsvandan til mergjar yfir einum eda tvem baukum a fostudagskvoldid sl...  var þá haldin lokadur krísufundur um efnahagsástandid í minkahusinu, her fyrir nedan er stutt fundargerd um malefnin sem farid var yfir......

1. Staða útflutningsgreina í landbúnaði og ödrum iðnaði....

2. Staða bænda í kreppuni

3. Hverjum er hægt ad kenna um kreppuna.

4. Samskipti Íslands og Bretlands- í fortíð og framtíð

5. Staða byggingariðnaðarins í kreppuni

Hlé: Einar og Hilmar kynna fundargestum stefnu sósialistans, veitingar úr pokum gesta

6. Farið yfir malefni Glitnis banka

7. Farið yfir málefni Landsbankans

8. Farið yfir málefni Kaupþings

9. Önnur mál- farið yfir öll fyrri mál og karpað um þad á mismálefnalegum nótum.

Upptaka af fundinum mun verda send í stjórnarráðið til frekari úrvinnslu og stefnumarkandi fyrir stjórnendur íslensku þjóðarskútunar. hér ma sja nokkrar myndir frá þessum hitafundi.....
http://cs-001.123.is/d9a6316c-bbd6-4969-b34c-6346b70c0db0.jpg
Hauki leist ekkert á ástandið í upphafi fundar.....
http://cs-003.123.is/b6510d76-5e36-47a4-b828-93188a5c234c.jpg
Þarna reynir haukur ad stilla til friðar, þegar allt ætlaði uppur að sjóða....!!!
http://cs-001.123.is/8e36f262-e0fb-4032-bbba-2e0ad71b1fcd.jpg
og Dagbjartur las honum pistilinn fyrir þad......
http://cs-001.123.is/1f5f3b55-8337-4f2f-a8c2-65c5cf6e0b9e.jpg
Gunnar Ingi fylgdist spenntur með umræðunni og spáir í hvað þurfi til að gera menn brjálaða.....
http://cs-004.123.is/b6b7bd31-1a42-44f3-bd6e-1d8356090f81.jpg
Hér má sjá Einar lýsa skoðun sinni á Noregi....

annars er þad ad fretta að MF mun fara í sína árlegu haust/vetrar ferð í sumarbústað í nóvember(þetta hljomar skringilega)......

jafnvel er planað að fara i einhverjar formlegar fjósskoðanir á næstunni, en þad kemur í ljos þegar nær dregur....

Talið er að piparkökuhúsakeppnin við sprúttlurnar verði ekki haldin þetta árið enda var síðasta keppni virkilega mikil niðurlæing fyrir þær og þykkja ekki verðugur andstæðingur á þessu sviði.... hefur verið leitað til okkar frá smáralind um að taka þátt i hinni arlegu piparkökuhúsakeppni Kötlu, og telja þeir ad við getum margfaldad ásókn í smaralindina svona rett fyrir jol ef við opinberum annad listaverk... 
Hinnsvegar hofum við ákveðið að opna söfnunarreikning fyrir bökunarnámskeiði handa sprúttlunum og vonum vid ad folk sjái sig auman og rifji upp hús þeirra frá sidustu keppni...

Einnig verður seinna myndbandið frá nordurferðinni frumsynt von bráðar....

kv. Ívar

» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Heimsóknir
Í dag:  116  Alls: 133496
Dagsetning
8. febrúar 2012
Könnun
Hver er líklegastur til ad detta inn sem karakter í Dagvaktinni??





Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1167 dögum
Bústaðaferð MF...!!